Mörgum fallast hendur við að byrja að fylla út skattframtalið en í mörgum tilfellum er það mjög einfalt þar sem búið er að forskrá flestar upplýsingar. Fjölmörg fyrirtæki aðstoða þó einstaklinga við framtalsgerð.
Eitt þeirra er fyrirtækið Skatt.is en á heimasíðu þess er að finna eftirfarandi gátlista yfir atriði sem hafa þarf í huga þegar framtalið er fyllt út.
Gátlisti framteljenda
Baby Sam innkallar barnavagna
Versluninni BabySam hefur kallað inn barnavagna af gerðinni Scandia Basic sem seldir voru á tímabilinu 2008-2013.
Leiðir fyrir verktaka til að lækka skattgreiðslur
„Það er auðvitað misjafnt eftir því hvernig rekstur þú ert með. Fólk áttar sig oft ekki á því að í einhverjum tilfellum getur það notað ýmsan rekstrarkostnað. En það fer allt eftir því hvað fólk er að gera, þannig getur smiður talið til efniskaup í Húsasmiðjunni sem blaðamaður getur kannski ekki,“ segir hann.
Kröfur neytenda á símafyrirtækin
Símafyrirtæki verða að vernda persónuupplýsingar neytenda. Þetta er meðal þeirra krafna sem Neytendasamtökin setja fram í tilefni af alþjóðadegi neytenda sem fram fer á morgun 15. mars. Þær eru:
Lánsveðsvaxtabætur koma eftir helgi
Ákvörðunar ríkisskattstjóra um sérstakar lánsveðsvaxtabætur er að vænta í síðasta lagi mánudaginn 17. mars en sækja þurfti um þær til ríkisskattstjóra fyrir 15. september síðastliðinn.
Forsáning kryddjurta – núna er tíminn
Þótt forsáning flestra matjurta byrji ekki fyrr en í apríl má fara að huga að því að sá kryddjurtum nú í mars og margir sá kryddjurtum tvisvar til þrisvar sinnum frá vori og fram á haust og ná þannig að borða heimaræktaðar kryddjurtir stóran hluta árs. Ferskar kryddjurtir kosta skildinginn og haldast auk þess ekki lengi ferskar, komnar upp úr moldinni.
Stærri pítsur ódýrari
Pítsa er vinsælasti skyndibitinn og góð bæði köld og heit. Þó pítsur séu verðlagðar eftir stærð borgar sig oft að kaupa stærri pítsur, sérstaklega fyrir þá sem eru duglegir við að borða afganga. Það eru margir sem átta sig ekki á því að 12 tomma pítsa er meira en tvisvar sinnum stærri en 8 tommur.
Svona sparar þú salernispappír
Nokkrar leiðir eru til að spara pappírinn. Ein er til dæmis að snúa pappírnum alltaf þannig að lausa blaðið liggi upp að veggnum en ekki fram, þannig er erfiðara að taka of mikið.
Vistvænn íslenskur kjúklingur
25-50% verðmunur í apótekum
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í apótekum fyrir skemmstu. Mestur verðmunur í könnuninni var á A. Vogel Avena Sativa fyrir svefn (50 ml.) sem var dýrust á 1.540 kr. hjá Austurbæjar Apóteki en ódýrast á 868 kr. hjá Apótekinu Skeifunni en það er 672 kr. verðmunur eða 77%. Minnstur verðmunur var á Prioderm húðlausn fyrir flatlús og hárlús (5 mg./ml. - 55 ml.) sem var dýrust á 1.933 kr. hjá Lyfju Húsavík en ódýrust á 1.690 kr. hjá Siglufjarðar Apóteki það er 243 kr. verðmunur eða 14%.
Jesús fullur af vori lífi og von
Jesús er besti páskabjórinn samkvæmt bragðprófi DV. Í öðru sæti var sigurvegarinn frá í fyrra, Víking Páskabjór. Jesús er uppseldur í Vínbúðum en hann er enn fáanlegur á veitinga- og öldurhúsum. Almennt þótti bjórinn frekar góður og voru meðaleinkunnir um það bil tveimur heilum hærri en fyrir ári.
Ertu í vandræðum með Netflix?
Síðustu forvöð að skila framtalinu
Nú eru tæpir tveir tímar til stefnu til að skila skattaframtali Ríkisskattstjóra.
Túrtappar með staut illfáanlegir
Neytandi hafði samband við DV vegna þess að á æ færri stöðum fást túrtappar með staut til uppsetningar. Að sögn konunnar virðast túrtappar frá OB sem ekki eru með staut vera með yfirburðastöðu og til á flestum stöðum sem selja snyrtivörur
Nýr galli í Ígló og Indí
Lesandi DV hafði samband og vildi þakka fyrir góða þjónustu hjá barnafataversluninni Ígló og Indí í Kringlunni. Sonur lesandans á fyrsta ári hafði fengið barnagalla að gjöf en fljótlega losnaði smella af gallanum. Viðkomandi fór þá með gallann í verslun fyrirtækisins
Stéttarfélög niðurgreiða sumarfríið
Flest stéttarfélög bjóða félögum sínum upp á aðgang að sumarhúsum í viku yfir sumartímann þótt mörg þeirra séu reyndar heilsárshús sem leigð eru út yfir vetrartímann líka. DV kannaði mismunandi verð og tilboð á leigunni auk annarra kosta sem stéttarfélögin Efling, VR og SFR bjóða upp á fyrir sumarfríið. Líklegt er að fleiri stéttarfélög bjóði svipaða þjónustu en núna er tíminn til að skoða hvað þau bjóða upp á.
Grænfriðungar vilja detox á tískuviku
Grænfriðungar opnuðu tískuvikuna í Mílanó í síðasta mánuði með því að birta risastóran borða þar sem krafist er eiturefnalausrar fataframleiðslu. Undirskriftasöfnun fer fram á vef samtakanna þar sem tískufyrirtækin eru krafin um að hætta skaðlegri framleiðslu. Yfirskrift átaksins vísar í ævintýrið um nýju fötin keisarans með merkinu #thekingisnaked.
Fimmfaldur verðmunur á uppþvottavélum
Næstum því fimmfaldur verðmunur er á sex manna uppþvottavélum samkvæmt könnun sem Neytendasamtökin gerðu fyrir skömmu. Sú ódýrasta kostaði 44.995 krónur og sú dýrasta 219.995 krónur en báðar þessar vélar eru gefnar upp sem sex manna vélar.
Vefjast um háls ungbarna
Barnahimnasængur sem seldar hafa verið í IKEA hafa flækst um háls ungbarna og þess vegna hefur verslunin ákveðið að innkalla þær. Engin alvarleg slys hafa verið tilkynnt en vegna fyrrnefndrar hættu eru viðskiptavinir sem eiga IKEA-himnasængur sem ætlaðar eru til notkunar með barnarúmum eða vöggum beðnir um að hætta notkun þeirra yfir rúmum hvítvoðunga og ungra barna. Himnasænginni má skila í IKEA-versluninni og fá endurgreitt.
Leikmenn mega ekki gelda
„Ný lög um velferð dýra taka af öll tvímæli um það að dýralæknum einum er heimilt að gelda dýr, gildir einu um hvaða dýrategund er að ræða. Nýju lögin taka einnig af öll tvímæli um að við sársaukafullar aðgerðir skuli ávallt deyfa eða svæfa dýr, aðeins er gefin ein undantekning frá þeirri reglu en það er að eyrnamarka má lömb og kiðlinga innan við viku gamla án deyfingar. Ekki svo að skilja að lömb og kiðlingar finni minna til heldur er þessi undanþága sett af praktískum ástæðum.“