Þegar fólk byrjar að æfa fyrir maraþon byrjar það ekki á að skokka 42 kílómetra heldur byrjar það á styttri vegalengdum. Að sama skapi er besta leiðin til að borga niður skuldir sú að byrja smátt. Það segir Michelle Singletary í nýlegum dálki í Washington Post.
Yfirleitt er mælt með því að fólk byrji á að greiða niður þá skuld sem ber hæsta vexti. En jafnvel þótt það kunni að vera skynsamlegast getur það orðið til þess að fólk eigi erfitt með að halda sig við niðurgreiðsluplanið. „Raunveruleikinn er sá að fólk hagar sér ekki skynsamlega, þá væri það ekki í fjárhagsvandræðum,“ segir Singletary.
Auðvelda leiðin til að borga niður skuldir
Ódýrari útfarir - leiðir til að lækka kostnað
Óeirðir vegna bananaverðs í Bretlandi
Bananaverkamenn í Suður-Ameríku búa oft við lélegar aðstæður og vinna fyrir smánarlegt kaup. Þetta kemur fram í grein á vefútgáfu breska dagblaðsins The Guardian nýlega en megnið af banönum sem seldir eru í breskum stórmörkuðum kemur þaðan.
Þar segir að þrátt fyrir verðbólgu undanfarinna ára hafi verð á banönum lækkað enda noti breskir stórmarkaðir verð á banönum til að auglýsa lágt verð. Lág laun verkamannanna eru ekki eina ástæðan fyrir lágu verði heldur hafa bananarnir verið úðaðir með rotvarnarefnum og skordýraeitri.
Foreldrar segja vinsælt leikfang vera hættulegt
Þrátt fyrir kvartanir bandarískra foreldra hefur eitt vinsælasta leikfangið í dag ekki verið innkallað.
Ódýrt að kaupa tilbúna grímubúninga
Óheimilt að miða við 0% verðbólgu á verðtryggðu láni
Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyrgð
„Ég var búin að eiga tölvuna í þrjá mánuði og hún krassar fyrirvaralaust,“ segir Vera Sölvadóttir en tölva sem hún var nýlega búin að kaupa slökkti á sér þegar hún var að vinna í henni. Tölvan var í ábyrgð en erfiðlega gekk að fá gert við hana.
„Ég fer með hana á laugardegi og þeir segja mér að koma á mánudegi því það sé enginn á verkstæðinu yfir helgina. Ég spyr hvenær ég geti fengið hana aftur því þetta er vinnutækið mitt. Þeir báðu mig að hafa samband á miðvikudegi og ég gerði það og þá voru þeir ekki byrjaðir að vinna í henni, en buðu mér að borga sextánþúsund krónur í flýtigjald,“ segir hún.
Hærra verð á næturna í 10-11 í Austurstræti
Sérstakt næturálag verður lagt á ákveðnar vörur í verslun 10-11 í Austurstræti frá miðnætti til klukkan sjö á morgnana. Þetta er ekki raunin í öðrum verslunum keðjunnar.
Lendingargjöld hækka í Keflavík
Ný árstíðabundin gjaldskrá flugvallargjalda á Keflavíkurflugvelli tekur gildi 1. nóvember næstkomandi. Við breytinguna munu notkunargjöld flugvallarins lækka að meðaltali um 19% yfir vetrarmánuðina en hækka um 4–5% yfir sumarmánuðina.
Flýtigjald er greiðsla fyrir næturvinnu
„Hvað varðar flýtigjald þá bjóðum við uppá á hraðari viðgerð sem er unnin af tæknimanni að kvöldi og er ástæðan fyrir kostnaðinum að tæknimaður vinnur verkið í næturvinnu en þetta ákveður hver og einn fyrir sig. Að bíða í 3 til 4 daga er ekki mikið og fá svo fría uppfærslu þykir líka gott," segir Bjarni Ákason framkvæmdastjóri Epli.is
Týndur farangur ábyrgð flugfélags
Þó stórir flugvellir séu með gríðarlega tæknilegum farangursflokkunarkerfum og farangur skili sér í langflestum tilfellum alla leið þá kemur alltaf fyrir öðru hvoru að farangur týnist.
Matvælarekstrarfræði á Bifröst
Boðið verður upp á nám í matvælarekstrarfræði frá og með næsta hausti við Háskólann á Bifröst en samkvæmt fréttatilkynningu ætlar skólinn með því að svara kalli atvinnulífsins um land allt sem í vaxandi mæli hefur áhuga á að auka nýsköpun og framþróun á sviði matvælaframleiðslu.
Selja miða á Justin Timberlake á 50 þúsund krónur
Gífurleg aðsókn hefur verið í miða á tónleika Justin Timberlake þann 24. ágúst næstkomandi. Miðarnir seldust upp á mjög skömmum tíma í morgun og er nú svo komið að hafið er að auglýsa miða á uppsprengdu verði.
80 þúsund fyrir að búa í gámi
„Kannski ekki æskilegasta leiðin að gera einhverja gámabyggð og auðvitað hætt við að það verði eins og braggabyggðirnar voru og það sé verið að skapa fátækrahverfi. Hins vegar þarf að leysa þennan bráðavanda leigjenda. Það þarf að koma jafnvægi á framboð og eftirspurn eftir leiguhúsnæði,“ segir Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur Neytendasamtakanna,
Svona velurðu gott vín
Margir vita ekkert hvað þeir eiga að velja þegar kaupa á vín með matnum og engin leið er að vita hvað er gott. Verð tryggir ekki alltaf gæði en DV fékk Dominique Plédel Jónsson vínrýni til að taka saman lista yfir bestu vínin í kringum 1.500 krónur í Vínbúðinni. „Um leið og komið er yfir 1.700 til 1.800 krónu markið eru vínin miklu betri og öruggari.
Kortanotkun veldur verðmætaþoku
„Tækniþróun í viðskiptum og yfirgnæfandi notkun korta og rafrænna peninga er aðalorsök verðmætaþoku. Þeir sem venjast á að framkvæma alltaf sömu hegðun til að fá mismunandi vörur, til dæmis rétta fram debetkort og fá allar sínar vörur í skiptum, er í miklu meiri hættu á að missa tengingu við verðmæti vöru og þjónustu.“
„Fátækrahverfin nú þegar risin" segir formaður Samtaka leigjenda
„Það virðist ganga erfiðlega að sannfæra stjórnvöld, sveitarfélög og hagsmunaaðila í hvaða stöðu íslenskt samfélag er komið í þegar kemur að húsnæðismálum,“ segir Jóhann Már Sigurbjörnsson formaður Samtaka leigjenda á Íslandi og fagnar umræðu um uppbyggingu á ódýru húsnæði og hugmyndum um gámahús sem fjallað hefur verið um í DV.
Ekki greint frá erfðabreyttum matvælum á umbúðum
Matvælastofnun hefur komið auga á þrjár vörutegundir sem innhéldu erfðabreytt matvæli en voru ekki merktar skilmerkilega samkvæmt lögum. Rannsókn stofnunarinnar náði til 33 matvælategunda, en af þeim reyndust þrjár – eða um 9 prósent - innihalda erfðabreytt matvæli án þess að það væri tekið fram á umbúðum.
Borgaðu minni skatt
Skattframtal var gert aðgengilegt á vef ríkisskattstjóra nú fyrir helgi en frestur til að skila framtali er til 21. mars. Möguleiki er á að sækja um aukinn frest hjá ríkisskattstjóra á heimasíðunni skattur.is og er hann þá framlengdur til 1. apríl. Þó skattar standi undir samneyslu samfélagsins eru flestir tilbúnir til að reyna að lækka þá upphæð sem þeir þurfa að borga í skatt og DV tók saman nokkur atriði sem veita rétt á ívilnunum í þá veru.
Lögfræðinemar til aðstoðar
Mestu máli skiptir að fólk sé með aðgangslykilinn sinn að rsk.is. Ef það er ekki með hann þá er hægt að óska eftir nýjum veflykli en þá þarf fólk að vera með aðgang að heimabankanum sínum og auðkennislykli þar sem nýr veflykill er sendur þangað,“