
„Um allar tegundir gildir að við eigum að forðast þær þegar þær eru orðnar skemmdar,“ segir Ólafur Reykdal matvælafræðingur sem segir matarsjúkdóma af völdum baktería í grænmeti og ávöxtum hugsanlega en ákaflega fátíða. „Merki um skemmd getur verið mygla auk þess sem bragð og lykt getur verið vísbending. Þroskun er eðlilegur ferill og geymsluþol grænmetis er misjafnt eftir tegundum. Það er ákvaflega mikilvægt að grænmeti sé geymt við þær aðstæður sem henta hverri tegund hvað varðar raka- og hitastig. Ef menn passa sig á því haldast gæðin og næringarefnin.“